Takk Takk hjálpar fyrirtækjum að stækka, spara og eignast vini.

Hljómar voða vel. En hvernig?

Takk Takk hjálpar Iceland Express, Víni & mat og fleiri góðum viðskiptavinum að búa til og annast upplifanir fólks á netinu.

Með öðrum orðum sjáum við um upplýsingaarkitektúr, útlitshönnun og textagerð á vefjum þeirra, bloggi, fréttabréfum, staðfestingarpósti og fleira. Við skiptum okkur líka af útliti, hegðun og framkomu þeirra á vefjum eins og Twitter, Flickr, Vimeo, YouTube og Facebook.

Og við gerum það þannig að það hjálpi þeim að stækka, spara og eignast vini.

Getur Takk Takk hjálpað þér að stækka?

InnkaupakarfaOkkar kenning er að fyrirtæki og stofnanir séu á netinu til að fá fólk til að gera eitthvað. Kaupa eitthvað af sér, skrá sig í eitthvað, hafa samband við sig eða bara hugsa um eitthvað.

Þar komum við til sögunnar. Við hjálpum þeim að ná til fleira fólks, og fá fleira fólk til að gera hluti.

Við notum vefi, fréttabréf, blogg, Facebook síður, Google auglýsingar, vefmælingar, Twitter, Vimeo, YouTube, Tumblr, Flickr og allt annað sem okkur dettur í hug til að búa til umhverfi sem talar með rödd viðskiptavina okkar og fær fólk til að bregðast við og gera hluti.

„Takk Takk hefur verið ómissandi fyrir Vín og mat. Mjög litlum tilkostnaði hefur okkur tekist að mynda tengsl við stóran hóp fólks og hjálpa þeim að finna, kaupa og drekka góð vín frá góðum framleiðendum sem við flytjum inn.“ —Arnar Bjarnason, Vín og matur

Getum við gert eitthvað fyrir þig? Við ættum að byrja á að ræða saman.

Getur Takk Takk sparað þér peninga?

SparibaukurVið höldum að með því að hjálpa fyrirtækjum að nota netið rétt getum við hjálpað þeim að spara. Til dæmis með því að

  • minnka auglýsingakostnað og leggja meiri áherslu á miðla eins og Facebook, YouTube og Twitter
  • skipta út prentuðu fréttabréfi fyrir einfalt og ódýrt fréttabréf í tölvupósti (sem við getum annað hvort séð um það alfarið eða sett það upp þannig að viðskiptavinir okkar geti sent út hjálparlaust án þess að hafa áhyggjur af tæknihliðinni)
  • nýta markaðskostnað betur — ekki eyða peningum til að fá fólk inn á vefi ef það finnur svo ekki út úr því hvað það á að gera þegar þangað er komið
  • spara auglýsingakostnað með því að gera vefi sýnilegri í leitarvélum
  • nota netið til að koma óvenjulega vel fram við viðskiptavini sína.

Kosturinn við að hafa skýr markmið er að það er hægt að mæla árangurinn af þeim. Við notum alls konar tól til þess þannig að bæði Takk Takk og viðskiptavinir okkar vita hvort það virkar sem við gerum.

Byrjaðu á að spara þér tíma og hafðu samband við okkur.

Getur Takk Takk hjálpað þér að eignast vini?

BroskallSum fyrirtæki tala til viðskiptavina sinna. Takk Takk hjálpar fyrirtækjum að tala við og hlusta á sína.

Flestir kunna betur við það hvernig fólk talar en fyrirtæki. Og fyrirtæki kunna líka oft ekki að hlusta á viðskiptavini sína. Þar komum við til sögunnar. Við hjálpum fyrirtækjum að tala við fólk á mannamáli. Við hjálpum þeim líka að hlusta á það sem viðskiptavinir þeirra eru að segja þeim og nota það til að bæta sig.

Viðskiptavinir þeirra verða þakklátir — og oftast svolítið hissa — að vera í samskiptum við fyrirtæki sem talar við þá eins og fólk.

Hver veit nema þeir láti það berast.

Viltu vita hvað við getum gert fyrir þig?

Sendu okkur línu. Takk Takk svarar fljótt fljótt.

Nafn
Póstfang
Hvað getum við gert fyrir þig?

Ekki hafa áhyggjur. Ekkert slæmt mun gerast.

Eða ef þú frekar vilt…

Tölvupóstur
hallo@takktakk.com

Sími
+49 151 2182 7613

Spjall
Takkspjall

... eða þarftu að hugsa málið?

Ekkert liggur á. Skoðaðu hverja við höfum unnið fyrir.

Segðu halló
hallo@takktakk.is

Takk-tu upp tólið
+33 6 43 38 57 37

Takk spjall
Takk-tu til máls

Tungumál
English | Íslenska | Deutsch

Við erum alls staðar
Twitter | Tumblr | Facebook

Takk Takk
Framleitt í nýtízku vélum

Fáðu fína fréttabréfið okkar



Ekkert slæmt mun gerast.