Takklátir viðskiptavinir

Hvað við höfum gert og fyrir hverja.

Iceland ExpressIceland Express

Takk Takk sér um netklúbbpóst Iceland Express á ensku — útlit, innihald og útsendingar. Þá ritstýrum við tiltölulega skemmtilegu ensku bloggi flugfélagsins um Ísland og sjáum til þess að Iceland Express eignist vini á Facebook og Twitter.

Auk þess má gjarnan koma fram að sem starfsmaður Iceland Express til langs tíma bar forstjóri Takk Takk pínulitla ábyrgð á arkitektúr, hönnun og innihaldi vefja félagsins (að meðtöldum hluta bókunarkerfisins), fréttabréfum, staðfestingarpóstum, bloggi Iceland Express á íslensku og áðurnefndu bloggi um Ísland á útlensku. Allt þetta vann á sínum tíma verðlaun sem besti íslenski viðskiptavefurinn og heimsins besti vefur lágfargjaldaflugfélags.

Vefurinn | Netklúbbspósturinn | Bloggið: How do you like Iceland | Facebook | Twitter

Vķn og maturVín og matur

Vín og matur er lítið fjölskyldufyrirtæki sem flytur inn góð vín og dálítið af góðum mat. Það var stofnað 2004 af þeim Arnari og Rakel sem bjuggu nokkur ár í Boston og Toskana. Þegar þau fluttu aftur heim fannst þeim að það mætti bæta aðeins úrvalið á Íslandi.

Takk Takk hefur frá upphafi hjálpað Víni og mat í að koma sér vel fyrir á netinu. Leitarvélavænn vefur hefur verið miðpunkturinn í rekstrinum og ekki síður fréttabréfið þeirra, Vínpósturinn. Árið 2004 var Vín og matur eitt af fyrstu fyrirtækjunum til að blogga. Þá nota þau oft Flickr fyrir ljósmyndir og YouTube fyrir myndbönd, til dæmis frá heimsóknum til framleiðenda. Fyrir nokkrum vikum datt Vín og matur svo inn á Facebook eins og allir aðrir landsmenn.

Markaðssetning þeirra fer fram nær eingöngu á netinu. Þannig hafa þau með lágmarks kostnaði náð að búa til lítið en áberandi vörumerki og byggja upp traust tengsl við viðskiptavini sína. Það hlýtur að teljast gott í landi þar sem bannað er að auglýsa vöruna sem þau selja og sjálf salan fer fram á vegum ríkins.

Vefurinn | Vínpósturinn | Bloggið | Flickr | Facebook | Twitter

Express ferširExpress ferðir

Express ferðir er ferðaskrifstofa í eigu Iceland Express. Fyrir hana sér Takk Takk um hressilegt fréttabréf á íslensku sem kemur út um það bil einu sinni til tvisvar í mánuði. Útlit og inntak þess er nokkuð skylt fréttabréfum Iceland Express.

Fréttabréf Express ferða

Sterling AirlinesSterling Airlines

Sterling er var eitt af stærstu lággjaldaflugfélögum Norðurlanda, með um 3m farþega árlega. Árið 2007 hlaut félagið verðlaun fyrir besta vef í ferðaiðnaði í Danmörku.

Sem starfsmaður Sterling bar forstjóri Takk Takk ábyrgð á því sem á fínu máli er kallað User Experience. (Það þýðir bara að hann reyndi að gera vefinn betri.) Hann stýrði auk þess útgáfu á fréttabréfi félagsins sem kom út aðra hvora viku á fjórum tungumálum, og bar ábyrgð á sölu á hliðarvörum eins og hótelherbergjum, bílaleigubílum og öðru þvílíku.

RSE

Rannsóknarstofnun um samfélags- og efnahagsmál vantaði nýtt og fínt fréttabréf og við settum það upp fyrir hana. Við bjuggum til útlit og kóða, og settum allt upp í einfalt kerfi til að starfsfólk RSE gæti skrifað og sent út fréttabréfið sjálft án þess að tala við okkur. (Við vorum mjög upptekin og mikilvæg á þessum tíma.)

Sinfóníuhljómsveit Íslands

Aftur í steinöld (um það bil 1997) settum við upp frumstætt fréttabréf í tölvupósti fyrir Sinfóníuhljómsveitina sem þótti svolítið merkilegt á þeim tíma. Fyrir hana gerðum við líka það sem okkur fannst vera frekar fínn vefur.

Žitt nafn hér

Við viljum gjarnan vinna fyrir þig. Og það vill svo til að við getum tekið að okkur verkefni frá og með janśar 2011.

Hafðu samband. Við bítum ekki.

Segðu halló
hallo@takktakk.is

Takk-tu upp tólið
+33 6 43 38 57 37

Takk spjall
Takk-tu til máls

Tungumál
English | Íslenska | Deutsch

Við erum alls staðar
Twitter | Tumblr | Facebook

Takk Takk
Framleitt í nýtízku vélum

Fáðu fína fréttabréfið okkar



Ekkert slæmt mun gerast.